Farþegum til og frá landinu sem fóru um Keflavíkurflugvöll fjölgaði um 4,5% á fyrsta ársþriðjungi 2008 miðað við sama tímabil í fyrra, samkvæmt tölum frá flugvellinum. Í aprílmánuði var hins vegar nokkur fækkun farþega.

Alls fóru 516.043 farþegar um Keflavíkurflugvöll frá ársbyrjun til loka apríl. Það er 2,26% fjölgun en sé eingöngu horft á farþega á leið til landsins eða frá því þá fjölgaði þeim um 4,5% á fyrsta ársfjórungi sem fyrr segir, að því er fram kemur í frétt Ferðamálastofu.