Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um rúmlega 12% í júní miðað við sama tíma í fyrra, úr rúmum 193 þúsund farþegum árið 2004 í rúma 217 þúsund farþega nú. Fjölgun farþega til og frá Íslandi nemur rúmum 10% milli ára og farþegum sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið fjölgaði um rúmlega 21%.

Alls hefur farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgað um tæp 10% það sem af er árinu miðað við sama tíma árið 2004, eða úr tæplega 710 þúsund farþegum í rúma 779 þúsund farþega.