Gerðar hafa verið breytingar á stjórn Landsbréfa, dótturfélags Landsbankans, og fjölgað í henni úr þremur í fimm.

Jón Steindór Valdimarsson er stjórnarformaður en aðrir eru þau Hanna Björg Hauksdóttir, Kristinn Ingi Lárusson, Sigurbjörn Jón Gunnarsson og Ragnhildur Geirsdóttir.

Breytingarnar eiga sér stað í kjölfarið á að annað dótturfélag bankans, Horn hf. var fært til Landsbréfa.