Samningstími rekstraraðila í brottfarasal flugstöðvarinnar rennur út í árslok og hefur stjórn Isavia ákveðið að efna til nýs forvals á verslunar- og veitingarekstri.  Um leið verður ráðist í breytingar á brottfararsal flugstöðvarinnar og þjónustan endurskipulögð.  Áætlað er að endurskipan ljúki vorið 2015.

Farþegaflóran á Keflavíkurflugvelli er að breytast með mikilli aukningu erlendra farþega. Íslendingar voru helstu viðskiptavinir verslana og þjónustufyrirtækja en hlutfallið hefur breyst með fjölgun erlendra ferðamanna. Erlendir farþegar voru 66% af heildarfjölda árið 2013 og er áætlað að hlutfallið aukist í um 75% árið 2020. Í tilkynningu frá ISAVIA segir að breytingin muni hafa mikil áhrif á tilhögun og vöruframboð í verslunum og veitingasölu.

Dótturfélag Isavia, Fríhöfnin, mun sem fyrr hafa með höndum  sölu á hefðbundnum tollfrjálsum varningi á borð við áfengi, tóbak, sælgæti, ilm- og snyrtivörur og skyldar vörur. Sérverslanir munu annast sölu annarra vöruflokka í einstökum verslunareiningum eða stærri deildarskiptum einingum með „búð í búð“ tilhögun.

Forvalið nær eingöngu til sérverslana og veitingastaða  en ekki vöruflokka Fríhafnarinnar.