Hið árlega Applicon Open var haldið á golfvelli Kjalar í Mosfellsbæ fyrir skömmu þar sem mörgum viðskiptavinum Applicon var boðið að taka þátt í golfmóti með Texas Scramble fyrirkomulagi.

Í tilkynningu frá Applicon kemur fram að golfmótið hefur notið sívaxandi vinsælda hjá viðskiptavinum Applicon, ekki síst vegna þess að fyrirkomulagið gerir óvönum mögulegt að spila með reyndari kylfingum og njóta leiðsagnar þeirra um leið.

Vinningshafar mótsins voru Guðbjörg  Árnadóttir, Applicon, Sindri Önundarson, Applicon, Ingimundur Árnason, Norðuráli og Haukur Jónsson frá Símanum.

Hér til hliðar má sjá myndir af mótinu. Hægt er að skoða myndirnar með því að smella á tölurnar neðst í hægra horni myndaboxins.