Alls fóru 26.624 erlendir ferðamenn frá landinu um Leifsstöð í mars síðastliðnum sem er lítilleg aukning, eða um 0,9%, frá því í mars í fyrra. Þrátt fyrir að aukningin varð ekki meiri að sinni þá er líklegt að þetta sé fjölmennasti marsmánuður frá upphafi hvað erlenda ferðamenn varðar og þar með er þetta þriðji metmánuðurinn í röð í þessum efnum. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka.

„Eru brottfarir erlendra ferðamanna nú komnar upp í 71.735 á fyrsta fjórðungi ársins sem er aukning upp á 9,6% frá sama tímabili í fyrra. Er því ekki annað hægt að segja miðað við þessa framvindu en að árið fari vel af stað hjá íslenskri ferðaþjónustu. Talningar Ferðamálastofu ná yfir allar brottfarir gesta frá landinu um Leifsstöð en það var einmitt sú stofnun sem sendi frá sér fréttatilkynningu í gærdag.“

Umfjöllun greiningar:

Ferðamönnum frá Norður-Ameríku fjölgar mest

Frá áramótum talið hefur ferðamönnum frá Norður Ameríku fjölgað mest en þeir voru um þriðjungi fleiri á fyrsta fjórðungi ársins samanborið við sama tímabil í fyrra. Aukningin er næstmest á ferðamönnum frá Mið- og Suður Evrópu á þessu tímabili og eru þeir nú um fimmtungi fleiri miðað við sama tímabil í fyrra. Ferðamönnum frá Norðurlöndum hefur fjölgað um 7,2% á sama tímabili. Ferðamönnum frá Bretlandi fjölgar jafnframt lítillega, eða sem nemur um 1,8%, á tímabilinu.

Lítil aukning á utanferðum Íslendinga

Mun minni aukning var á utanferðum Íslendinga nú í mars síðastliðnum en verið hefur í mánuði hverjum miðað við sama tíma árið á undan síðustu misseri. Þannig fóru 22.641 Íslendingar að utan nú í mars en þeir höfðu verið 22.413 í mars árið á undan. Fjölgaði brottförum Íslendinga því aðeins um 1,0% á tímabilinu. Hafa nú alls 65.020 Íslendingar haldið erlendis það sem af er ári, sem er fjölgun upp á 9,5% frá sama tímabili í fyrra.

Þessi litla aukning nú í mars er í takti við vísitölu Capacent Gallup fyrir utanlandsferðir, sem mælir ársfjórðungslega hversu líklegt það er að einstaklingar komi til með að ferðast til útlanda á næstu 12 mánuðum. Sú vísitala lækkaði nú í mars frá síðustu mælingu, sem fór  fram í desember, í 122,7 stig úr 133,4 stigum og var gildi hennar þar með svipað og það var í mars í fyrra. Þannig að ef marka má þessa vísitölu virðist nokkuð hafa dregið úr ferðagleði landans frá því í haust, en hún hefur hæst farið í 136,4 stig frá hruni sem var í september fyrir ári.