Kærunefnd útlendingamála hefur gert samning við Fjölnet sem felur í sér að setja upp, hýsa og reka tölvukerfi fyrir stofnunina.

Samningurinn kemur í kjölfar útboðs í gegnum Ríkiskaup þar sem Fjölnet var hlutskarpast.
Kærunefnd útlendingamála er sjálfstæð stjórnsýslunefnd sem úrskurðar í kærumálum á grundvelli útlendingalaga.

Formaður nefndarinnar er Hjörtur Bragi Sverrisson og varaformaður hennar er Anna Tryggvadóttir, en með þeim starfa tveir yfirlögfræðingar, 13 lögfræðingar við undirbúning úrskurða og tveir ritarar, eða samtals 19 manns.

Starfsfólk nefndarinnar hefur langa reynslu af útlendingamálum og úrskurðum á því sviði, sem og mannréttindamálum segir í fréttatilkynningu Fjölnets. Fjölnet býður kærunefnd útlendingamála velkomna í hóp ánægðra viðskiptavina segir þar jafnframt