Ólöf Nordal, alþingismaður og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, tilkynnti fyrir stuttu að hún hyggðist láta af þingmennsku eftir alþingiskosningarnar næsta vor. Þá mun hún jafnframt hætta sem varaformaður Sjálfstæðisflokksins á landsfundi flokksins sem fer að öllum líkindum fram snemma á næsta ári.

Ólöf var fyrst kjörin á Alþingi árið 2007 og þá fyrir Norðausturkjördæmi. Hún var endurkjörin árið 2009 en þá fyrir Reykjavíkurkjördæmi suður. Þá var hún kjörin varaformaður Sjálfstæðisflokksins á auka landsfundi sumarið 2010 eftir að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hafði sagt af sér sem varaformaður fyrr um vorið.

Ólöf er sem kunnugt er eiginkona Tómasar Más Sigurðssonar, forstjóra Alcoa í Evrópu. Tómas Már var áður forstjóri Alcoa á Íslandi en var um síðustu áramót ráðinn forstjóri Alcoa í Evrópu og flutti í kjölfarið til Genf í Sviss.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast blaðið undir liðnum tölublöð hér að ofan.