Airbus 330 farþegaþotur eru vanalega notaðar á lengri flugleiðum en síðustu vetur hefur WOW air stuðst við þess háttar flugvélar fyrir áætlunarferðir sínar til Amsterdam og París. Þetta kemur fram á vef Túrista .

Sá háttur verður líka hafður á að þessu sinni að sögn Svanhvítar Friðriksdóttur, upplýsingafulltrúa flugfélagsins. Það verða því 345 sæti í hinum daglegu ferðum WOW til Amsterdam og Parísar.

Áður en þetta ár verður liðið bætast svo fjórar Airbus A330-300neo breiðþotur bætast við flugflota WOW air en í þeim eru 365 sæti.