Ein tilkynning um hópuppsögn barst Vinnumálastofnun í júní síðastliðnum, þar sem 25 manns var sagt upp störfum. Á vef Vinnumálastofnunar kemur fram að um hafi verið að ræða tilkynningu um hópuppsagnir í rannsóknum og þróunarstarfi.  Engin tilkynning um hópuppsögn barst Vinnumálastofnun í júlí.

Alls hafa Vinnumálastofnun borist 4 tilkynningar um hópuppsagnir frá janúar til júlí 2013, þar sem 88 einstaklingum hefur verið sagt upp störfum.