Iceland Foods Limited hefur keypt 37% hlut í félaginu Ísland-verslun en Ísland-verslun rekur verslunina Iceland í Kópavogi. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.

Jóhannes Jónsson á því 63% í fyrirtækinu. Malcolm Walker, aðaleigandi Iceland Foods, segist ánægður með árangur Iceland hér á landi og segir að áætlað sé að opna fjórar nýjar verslanir.