Á fjórða tug ökutækja voru seld á uppboði á vegum Sýslumannsins í Reykjavík. Flest ökutækin voru fólksbifreiðar en einnig mátti þar finna eitt mótorhjól sem var slegið á yfir 400 þúsund krónur. Uppboðið fór fram í húsnæði Vöku í Skútuvogi.
Athygli vekur að þegar uppboði var auglýst þá voru yfir 270 ökutæki skráð sem selja átti á uppboðinu. Einungis 31 enduðu á að vera boðin upp.