Aukning hefur orðið á innlendri kortaveltu í verslun milli ára í hverjum mánuði frá því í mars síðastliðnum, en í októbermánuði versluðu Íslendingar vörur fyrir 42 milljarða kr. með kortum sínum og jókst veltan um 26% frá sama mánuði í fyrra.

Fátt var hins vegar að frétta af erlendum greiðslukortum í október. Erlend kortavelta mánaðarins nam 1,8 milljarði og minnkaði um 89,4% frá okóber 2019. Kortavelta í heild í október, það er bæði innlendra og erlendra korta, nam 69,85 milljarði kr. og minnkaði um 16% frá sama mánuði í fyrra. Verslun jókst á þann mælikvarða um tæp 17% og aðrir flokkar drógust saman um tæp 42%.ík.

10% aukning milli mánaða í matvöruverslunum

Eins og með innlendu kortaveltuna var mikil aukning í netverslun, líkt og í fyrstu bylgjunni, enda ljóst að hertar samkomutakmarkanir þrýstu neytendum á vefinn. Velta íslenskra korta nam 3 milljörðum í netverslun, innanlands. Innlend kortavelta í stórmörkuðum og dagvöruverslunum nam 18,3 millj. kr. í október og jókst um 31% á milli ára. Jafnframt jókst veltan um 10% á milli mánaða.

Rannsóknarsetur verslunarinnar hefur tekið saman tölurnar sem koma frá innlendum færsluhirðingaraðilum korta, en setrið telur stærstu skýringu hækkunarinnar á kortaveltu í matvöruverslunum vera lokun mötuneyta og minni neysla á veitingastöðum en velta síðarnefnda flokksins dróst saman um 21,5% í október.

Í september velti rannsóknarsetrið upp áhrifum þriðju bylgju kórónuveirufaraldursins á fataverslun, en hún átti mjög undir högg að sækja í fyrstu bylgju. Í október jókst innlend kortavelta fataverslana um 2,7% samanborið við fyrra ár.

15% fataverslunar í október fór fram á netinu samanborið við 6% í september og er það til marks um sveigjanleika kaupmanna og neytenda og þess að Íslendingar hafi lært að lifa með veirunni.

Nærri helmingsaukning í raftækjum

Íslendingar virðast halda áfram að uppfæra allskyns raftæki, en velta í þeim flokki jókst um tæp 45% milli ára og nam 2,6 milljörðum kr. Þar af nam netverslun flokksins tæplega 436 milljónum kr., jókst hún um 216% milli ára, og stóð að baki 16% allrar verslunar í flokknum.

Á öðrum sviðum voru minni umsvif í október. Sem dæmi um þetta dróst innlend kortavelta bensínstöðva saman um 13,4% frá október í fyrra. Þetta er í samræmi við minni umferð samkvæmt mælingum Vegagerðarinnar en hún dróst saman um 31% á hringveginum og um 9,5% á höfuðborgarsvæðinu frá fyrra ári.