Í júnímánuði voru gistinætur á hótelum 357.400 sem er 25% aukning miðað við júní 2015. Nam fjölgun erlendra gesta 27%, en þeir eru um 93% af heildarfjölda gistinátta, en gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 3%.

Flestar gistinæturnar voru á höfuðborgarsvæðinu eða 206.400 sem er 29% aukning miðað við í júní 2015, en um 58% allra gistinátta voru á höfuðborgarsvæðinu. Næstflestar gistinætur voru á Suðurlandi eða um 53.300.

Bandaríkjamenn voru með flestar gistinætur, eða 90.700, Þjóðverjar með 62.100 og svo Bretar með 36.800 gistinætur.

Ef horft er á 12 mánaða tímabil frá júlí 2015 til júní 2016 voru gistinætur á hótelum 3.222.300 sem er 28% aukning miðað við sama tímabil árið áður