Alls bárust tilboð að andvirði 2,8 milljarða króna í hlutafjárútboði íslenska tölvuleikjafyrirtækisins Solid Clouds sem lauk klukkan 16 í dag. Í tilkynningu félagsins segir að rétt undir 2.700 fjárfestar hafi tekið þátt í útboðinu. Stefnt er að því að viðskipti með hlutabréf Solid Clouds á First North markaðnum hefjist þann 12. júlí næstkomandi.

Í útboðinu bárust tilboð að andvirði 1,8 milljarða króna í tilboðsbók A, sem nær utan um tilboð undir 15 milljónum. Í tilboðsbók B, fyrir tilboð yfir 15 milljónum, bárust tilboð að fjárhæð tæplega 900 milljónum króna.

Alls voru 40 milljónir hlutir í boði í útboðinu en félagið hefur heimild til að stækka útboðið um 18 milljónir til viðbótar. Ekki kemur fram hvort útboðið verður stækkað en tilkynnt verður um úthlutun á morgun. Í útboðslýsingu kom fram að leitast verður við að skerða ekki áskriftir undir 300.000 krónur.

Verði útboðið stækkað mun nýja hlutaféð samsvara um 32% hlut í fyrirtækinu fyrirtækisins, sem gefur Solid Clouds um 2,3 milljarða króna markaðsvirði .

Sjá einnig: Solid Clouds gefur út nýjan Starborne leik

„Við erum þakklát fyrir þann gífurleg áhuga sem Solid Clouds hefur fengið frá fjárfestum. Þetta er minningarverð stund og spennandi skref í sögu fyrirtækisins. Fyrirtækið er nú í góðri stöðu fyrir næsta vaxtafasa og þetta útboð mun gera okkur kleift að grípa framtíðartækifæri,“ segir Stefán Gunnarsson , forstjóri Solid Clouds í tilkynningunni.