Fjórir af hverjum tíu landsmönnum vilja að forystumenn stjórnarflokkanna segi af sér vegna niðurstöðu Icesave-málsins, samkvæmt niðurstöðu nýrrar skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 .

Alls segjast 39,7 prósent þeirra sem afstöðu taka til spurningarinnar vilja að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvegaráðherra segi af sér vegna niðurstöðu Icesave-málsins, en 60,3 prósent vilja að þau sitji áfram.

Mikill munur er á afstöðu landsmanna til málsins eftir stuðningi við stjórnmálaflokka. Þannig vill meirihluti stuðningsmanna Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks að Jóhanna og Steingrímur víki. Afar fáir stuðningsmenn stjórnarflokkanna og Bjartrar framtíðar eru sama sinnis.