Biðlaunakostnaður fjögurra starfsmanna Þjóðleikhússins kostaði skattgreiðendur um 16,5 milljónir króna á síðasta ári. Þeirr sem þáðu biðlaun höfðu enga vinnuskyldu á biðlaunatímanum og naut Þjóðleikhúsið því ekki starfskrafta þeirra í fyrra.
Þjóðleikhúsið skilaði 14 milljóna króna tapi í fyrra en hagnaðist um 5,2 milljónir árið 2010.
Fjórum leikurum í fullu starfi var sagt upp hjá Þjóðleikhúsinu. Tveir sem voru í leyfi sneru ekki aftur og einn var sendur í ársleyfi. Þeim fjórum sem var sagt upp voru Anna Kristín Arngrímsdóttir, Þórunn Lárusdóttir, Elva Ósk Ólafsdóttir og Kjartan Guðjónsson. Þá var samið við Rúnar Frey Gíslason, sem var í leyfi frá leikhúsinu, um að hann myndi ekki snúa aftur til starfa.
Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu sem kemur út í fyrramálið.
Meðal annars efnis í Viðskiptablaðinu á morgun er:
- HB Grandi greiðir hundruð milljóna í arð
- Framtíð CCP ræðst af nýjum tölvuleik
- Kraftaverk þarf til að Seðlabankinn hækki ekki stýrivexti
- Gamli Straumur selur Billetlugen í Danmörku
- Uppgjör bankanna krufið til mergjar
- Kópavogur þarf 5,5 milljarða á næsta ári til að greiða skuldir
- Seðlabankinn er með annað haftafrumvarp í vinnslu
- Könnun Capacent á framtíðarhorfum 400 stærstu fyrirtækja landsins
- Landsbankinn færir lánasafn SpKef niður um þriðjung
- Ítarlegt viðtal við Liv Bergþórsdóttur, forstjóra Nova
- Biðin styttist hjá spenntum stangveiðimönnum
- Allt um skákkennslu fyrir börn
- Wow air... Tom Cruise, Top Gun
- Ýmislegt um skatta og hjól atvinnulífsins
- Hjónin á Norðfirði á Ströndum og ferðamennirnir
- Óðinn fjallar um afleiðingar stjórnarstefnunnar
- Hver er þessi Markús Sigurbjörnsson, forseti Hæstaréttar?
- Huginn og Muninn eru á sínum stað og Týr fjallar um stjórnarflokkana og vonleysið
- Dægurmál, markaðsmál, þjóðmál og fólk á sínum stað
- Myndasíður, umræður, pistlar og margt, margt fleira...