Árlegum námsstyrkjum Námsmannaþjónustu Sparisjóðsins í Keflavík hefur verið úthlutað. Eftirtaldir námsmenn fengu styrk að upphæð 150.000 kr. í ár:
Elín Halldórsdóttir, sem lauk kennslufræði listgreina frá Listaháskóla Íslands.
Guðmundur Freyr Atlason sem er að ljúka meistaranámi í orkuverkfræði frá Tækniháskóla Danmerkur.
Hjördís Birna Hjartardóttir sem hefur lokið BA námi í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík og mun ljúka meistaranámi við skólann einnig.
Jóna Marín Ólafsdóttir sem hefur lokið BSc gráðu í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands og er á leið í mastersnám.
Samkvæmt frétt Víkurfrétta um málið hefur Sparisjóðurinn í Keflavík veitt styrkinn átján ár í röð og hafa samtals 67 námsmenn fengið styrki.