LOGOS lögmannsþjónusta hefur bætt við sig fjórum löglærðum fulltrúum. Fulltrúarnir eru ráðnir til að sinna lögfræðilegum verkefnum hjá stofunni. LOGOS er með starfsstöðvar í Reykjavík og London. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

Erna Leifsdóttir hóf störf hjá LOGOS í júní 2019. Erna útskrifaðist með ML gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík sumarið 2019. Hún starfaði áður við lögfræðiráðgjöf hjá Eignarekstri. Unnusti Ernu er Theodór Halldórsson flugmaður.

Hrafnkell Ásgeirsson hóf störf sem fulltrúi hjá LOGOS í júní 2019 en starfaði sem laganemi hjá LOGOS frá árinu 2017 samhliða námi. Hannútskrifaðist með MA gráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands sumarið2019.Hrafnkell starfaði áður hjá VÍS. Unnusta Hrafnkels er Vala Rún Magnúsdóttir nemi í verkfræði.

Kristín Edda Frímannsdóttir hóf störf sem fulltrúi hjá LOGOS í júní 2019 en starfaði sem laganemi hjá LOGOS frá árinu 2017 samhliða námi. Húnútskrifaðist með MA gráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands sumarið 2019.Áður starfaði Kristín Edda hjá Morgunblaðinu og Lagastofnun Háskóla Íslands. Unnusti Kristínar Eddu er Arnaldur Bragi Jakobsson arkitekt.

Tómas Aron Viggósson hóf störf sem fulltrúi hjá LOGOS í júní 2019 en starfaði sem laganemi hjá LOGOS frá árinu 2017 samhliða námi. Tómas útskrifaðist með ML gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2019. Hann starfaði áður hjá Tryggingamiðstöðinni. Unnusta Tómasar er Unnur Véný Kristinsdóttir verkefnastjóri hjá Háskólanum í Reykjavík.