Auglýsingastofan Pipar\TBWA hefur ráðið fjóra nýja starfsmenn. Þetta eru þau Salka Þorsteinsdóttir, Kristján Gauti Karlsson, Anna Bergmann og Margrét Ósk Hildur Hallgrímsdóttir og hafa þau öll hafið störf á stofunni. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Salka Þorsteinsdóttir mun starfa sem grafískur hönnuður. Hún er með B.A. gráðu í grafískri hönnun frá Listaháskóla Íslands og starfaði áður sem grafískur hönnuður á Íslensku auglýsingastofunni árin 2016-2020.

Kristján Gauti Karlsson er texta- og hugmyndasmiður. Hann er með B.A. í íslensku frá Háskóla Íslands og starfaði áður sem blaðamaður á Skessuhorni árin 2015-2021.

Anna Bergmann er samfélagsmiðlafulltrúi í efnisframleiðslu. Anna er með B.A. í Fashion Business, Communication and Media frá Istituto Marangoni í Mílanó. Hún hefur bloggað á Trendnet undanfarin 2 ár og starfaði sem markaðsfulltrúi hjá ChitoCare árið 2020.

Margrét Ósk Hildur Hallgrímsdóttir er grafískur hönnuður. Margrét er með B.A. í grafískri hönnun frá Listaháskóla Íslands og var áður sjálfstætt starfandi.