Fjórir nýir starfsmenn hafa verið ráðnir til Nasdaq á Íslandi Nasdaq á Íslandi á undanförnum vikum, hjá Nasdaq Iceland (Kauphöllinni) og Nasdaq CSD á Íslandi (Nasdaq verðbréfamiðstöð). Það eru þau Ástgeir Ólafsson, Brynja Þrastardóttir, Grímur Birgisson og Kristófer Númi Hlynsson.

Ástgeir Ólafsson
Ástgeir Ólafsson
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Ástgeir Ólafsson hefur hafið störf hjá Kauphöllinni á sviði ráðgjafar, sölu og þjónustu við viðskiptavini. Ástgeir er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og hefur einnig lokið prófi í verðbréfaviðskiptum. Hann starfaði áður sem blaðamaður á Viðskiptablaðinu, en hefur auk þess starfað sem sérfræðingur á fjármálasviði Arctic Adventures og sinnt dæmatímakennslu í Háskólanum í Reykjavík.

Brynja Þrastardóttir
Brynja Þrastardóttir
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Brynja Þrastardóttir hefur hafið störf í eftirliti Kauphallarinnar. Brynja er við það að ljúka tveimur mastersgráðum frá Háskóla Íslands, annarri í fjármálahagfræði og hinni í alþjóðasamskiptum. Hún lauk B.Sc. í viðskiptafræði með áherslu á fjármál frá sama skóla árið 2018. Meðfram námi var Brynja flugfreyja hjá WOW Air auk þess sem hún var í starfsnámi hjá fastanefnd Íslands í Genf haustið 2019 og nú í vor hjá Félagi Sameinuðu þjóðanna á Íslandi.

Grímur Birgisson
Grímur Birgisson
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Grímur Birgisson hefur hafið störf sem lögfræðingur hjá Nasdaq á Íslandi. Grímur útskrifaðist með B.A. gráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2016 og meistaragráðu í lögfræði (mag.jur.) frá sama skóla árið 2018. Áður starfaði Grímur sem fulltrúi á LEX lögmannsstofu og sinnti þar hefðbundnum lögmannsstörfum, helst á sviði fjármálamarkaða.

Kristófer Númi Hlynsson
Kristófer Númi Hlynsson
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Kristófer Númi Hlynsson hefur hafið störf hjá Nasdaq verðbréfamiðstöð í þjónustu og ráðgjöf við viðskiptavini og við þróun á nýjum vörum og þjónustu. Kristófer hefur lokið mastersgráðu í alþjóðlegum fjárfestingum og fjármálum frá Bournemouth University, ásamt B.A. gráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands.

Áður en hann hóf störf hjá verðbréfamiðstöðinni, starfaði hann hjá fjárfestingabankanum JP Morgan í Bretlandi á sviði fyrirtækjaaðgerða. Þá hefur Kristófer starfað sem þjónustufulltrúi einstaklinga og fyrirtækja hjá Landsbankanum og á lögfræðisviði Arion banka.

Nasdaq (Nasdaq: NDAQ) er alþjóðlegt tæknifyrirtæki sem þjónar verðbréfamörkuðum og öðrum atvinnugeirum. Félagið segir að fjölbreytt framboð sitt af markaðsgögnum, greiningarvörum, hugbúnaði og þjónustu geri viðskiptavinum félagsins kleift að láta framtíðarsýn þeirra verða að veruleika.