Fjórir sóttu um starf forstjóra Bankasýslu ríkisins. Umsækjendur eru Karl Finnbogason sérfræðingur hjá Bankasýslunni, Kolbrún Jónsdóttir viðskiptafræðingur, Ólafur Örn Ingólfsson viðskiptafræðingur og Páll Magnússon bæjarritari í Kópavogi. Fram kemur á heimasíðu Bankasýslunnar að ráðningaferlið sé á lokastigum.

Elín Jónsdóttir, núverandi forstjóri,  sagði starfi sínu lausu í sumar en hún hefur gegnt starfinu frá stofnun Bankasýslunnar. Hún verður forstjóri þar til annar verður ráðinn.