Fjórir einstaklingar hafa sótt um stöðu ríkissáttasemjara. Þeir eru Aðalheiður K. Þórarinsdóttir, Haukur Nikulásson, Magnús Pétursson og Valtýr Þór Hreiðarsson.
Skipað verður í embættið til fimm ára, frá 1. nóvember næstkomandi.
Þetta kemur fram á vef félags- og tryggingamálaráðuneytisins. Fimm sóttu um starf ríkissáttasemjara en umsóknarfrestur rann út 1. október en einn dró umsókn sína tilbaka.