Fjórir sóttu um embætti hæstaréttardómara en umsóknarfrestur rann út 18. júní síðastliðinn. Umsækjendur eru Sigríður Ingvarsdóttir héraðsdómi, Sigrún Guðmundsdóttir héraðsdómi, Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari og Þorgeir Örlygsson dómari við EFTA-dómstólinn í Lúxemborg. Skipað verður í embættið frá og með 1. ágúst 2010.