Fjórar umsóknir bárust um embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum, en umsóknarfrestur rann út 11. nóvember síðastliðinn.

Dóms- og kirkjumálaráðherra skipar í embættið frá og með 1. janúar 2009 til fimm ára í senn.

Umsækjendur eru:

  • Alda Hrönn Jóhannsdóttir, löglærður fulltrúi lögreglustjórans á Suðurnesjum
  • Ásgeir Eiríksson, fulltrúi og staðgengill sýslumannsins í Keflavík
  • Halldór Frímannsson, sérfræðingur – lögmaður á fjármálaskrifstofu Reykjavíkurborgar
  • Sigríður Björk Guðjónsdóttir, aðstoðarríkislögreglustjóri

Þetta kemur fram á vef dómsmálaráðuneytisins.