Alls sóttu fjórir um setningu í embætti hæstaréttardómara sem auglýst var til umsóknar 15. júlí síðastliðinn. Þeir eru Benedikt Bogason, dómstjóri héraðsdóms Vesturlands, Guðjón Ólafur Jónsson hæstaréttarlögmaður, Ingimundur Einarsson héraðsdómari og Þorgeir Ingi Njálsson, dómstjóri héraðsdóms Reykjaness. Sá sem hlýtur starfið mun sitja í embætti dómara við Hæstarétt Íslands á meðan að leyfi skipaðs dómara stendur yfir.