Sex af hverjum tíu aðildarfyrirtækjum SA hyggjast ekki gera breytingar á starfsmannafjölda á næstu sex mánuðum, 14% áforma fjölgun starfsmanna en 26% hyggjast fækka þeim.

Þetta kemur fram í nýrri Samtaka atvinnulífisins (SA) á atvinnuhorfum meðal fyrirtækja.

Af þeim sem hyggjast fjölga starfsmönnum ætla tveir þriðju að fjölga um innan við fimm starfsmenn. Þó finnst dæmi um áformaða fjölgun um yfir 50 starfsmenn. Í þeim hópi sem hyggst fækka starfsmönnum ætla 70% að fækka um innan við fimm starfsmenn en fimmtungur þeirra hyggjast fækka um meira en 10,  sem geta talist hópuppsagnir.   Fram kemur á vef SA að rúmur fjórðungur fyrirtækjanna, 27%, hafa brugðið á það ráð að breyta fullum störfum í hlutastörf á árinu 2009 til þess að forðast uppsagnir. Í sambærilegri könnun í febrúar síðastliðnum sögðust 18% fyrirtækjanna hafa gert það, þannig að notkun þessa úrræðis virðist hafa farið vaxandi.  Fjórðungur, 25%, fyrirtækjanna hefur gripið til launalækkana á árinu til þess að tryggja áframhaldandi rekstur, en til samanburðar höfðu 18% gert það í könnuninni í febrúar.

Sjá nánar á vef SA.