Árlega heiðrar FKA þrjár konur í atvinnulífinu og veitir þeim viðurkenningar til að vekja athygli á eftirtektarverðum konum í atvinnulífinu en kl. 16 í dag fer Viðurkenningarhátíð FKA 2020 fram í Gamla bíó. Veittar eru viðurkenningar á hátíðinni til þriggja kvenna sem hafa verið konum í atvinnulífinu hvatning og fyrirmynd.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra flytur erindi og eftirfarandi viðurkenningar verða veittar:

Hvatningarviðurkenningin er veitt konu sem sýnt hefur athyglisvert frumkvæði, Þakkarviðurkenningin er veitt konu fyrir eftirtektarvert ævistarf sem stjórnanda í atvinnulífinu og FKA Viðurkenningin er veitt fyrir vel unnin störf í þágu atvinnureksturs kvenna eða þeim sem hafa verið konum í atvinnulífinu sérstök hvatning eða fyrirmynd.

Á síðasta ári fékk Margrét Kristmannsdóttir, framkvæmdastjóri Pfaff, FKA Viðurkenninguna, Sigríður Snævarr sendiherra fékk Þakkarviðurkenningu FKA og Helga Valfells, framkvæmdastjóri Crowberry Capital, Hvatningarviðurkenningu FKA.

Við skipan dómnefndar var leitast við að einstaklingar hefðu sem breiðastan bakgrunn í aldri, reynslu og búsetu. Það er í fullu samræmi við stefnu FKA fyrir stjórnarmenn og stjórnendur framtíðarinnar. Dómnefnd fyrir viðurkenningarhátíðina í ár var skipuð fjölbreyttum hópi einstaklinga:

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður borgarráðs og staðgengill borgarstjóra er formaður. Auk hennar eru í nefndinni Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, Margét Tryggvadóttir, forstjóri NOVA, Kristinn Óli Haraldsson (Króli), tónlistarmaður, leikari, áhrifavaldur og ræðukeppandi, Katrín Olga Jóhannesdóttir, formaður Viðskiptaráðs Íslands, Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri tölvuleikjafyrirtækisins CCP og Guðbjörg Matthíasdóttir, útgerðar- og athafnakona í Vestmannaeyjum.

Viðurkenningarhátíðin er eini viðburður FKA sem opin er fyrir einstaklinga af öllum kynjum utan FKA og öllum gestum tekið fagnandi.

FKA Viðurkenningarhátíðin er gjaldfrjáls en skráning er mikilvæg í viðburðarboði undir „MIÐAR" á Facebook https://www.facebook.com/events/2543349062589110/