Félag kvenna í atvinnulífinu, FKA, kallar nú eftir tilnefningum frá almenningi og atvinnulífinu fyrir hina árlegu Viðurkenningarhátíð þar sem konur úr atvinnulífinu eru heiðraðar. Dómnefnd skipuð sjö einstaklingum fer yfir allar tilnefningar og verða úrslit kynnt á FKA Viðurkenningarhátíðinni þann 20. janúar 2022 á Grand Hótel Reykjavík.

Að vanda verða veittar viðurkenningar á hátíðinni til þriggja kvenna sem hafa verið konum í atvinnulífinu hvatning og fyrirmynd. Um er að ræða FKA þakkarviðurkenningu, FKA viðurkenningu og FKA hvatningarviðurkenningu.

Tekið er fram að konurnar sem tilnefndar eru þurfa ekki að vera félagskonur FKA heldur hvaðan sem er úr samfélaginu og allir geta sent inn tilnefningu.

„Það er mikilvægt að beina kastaranum að flottum fyrirmyndum, fjölbreytileika og fá nöfn af fjölbreyttum hópi kvenna á lista og nöfn kvenna af öllu landinu, sem dómnefnd mun vinna með og á endanum velja þær konur sem verða heiðraðar af FKA í janúar 2022,“ segir í tilkynningu FKA.

Hægt er að tilnefna á heimasíðu FKA til og með 25. nóvember 2021.

Viðurkenningarhafar síðustu ára:

Viðurkenningin er veitt fyrir vel unnin störf í þágu atvinnureksturs kvenna eða þeim sem hafa verið konum í atvinnulífinu sérstök hvatning og fyrirmynd. Viðurkenningarhafar fyrri ára eru:

María Fjóla Harðardóttir
Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir
Margrét Kristmannsdóttir
Erna Gísladóttir
Guðrún Hafsteinsdóttir
Birna Einarsdóttir
Guðbjörg Matthíasdóttir
Liv Bergþórsdóttir
Margrét Guðmundsdóttir
Rannveig Grétarsdóttir
Aðalheiður Birgisdóttir
Vilborg Einarsdóttir
Rannveig Rist
Steinunn Sigurðardóttir
Halla Tómasdóttir
Ásdís Halla Bragadóttir
Katrín Pétursdóttir
Aðalheiður Héðinsdóttir
Svava Johansen
Elsa Haraldsdóttir
Þóra Guðmundsdóttir
Hillary Rodham Clinton

Hvatningarviðurkenningin er veitt konu í atvinnulífinu fyrir athyglisvert frumkvæði eða nýjungar í atvinnurekstri. Viðurkenningarhafar fyrri ára eru:

Fida Abu Libdeh
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
Helga Valfells
Dr. Sandra Mjöll Jónsdóttir Buch
Dr. Hólmfríður Sveinsdóttir
Kolbrún Hrafnkelsdóttir
María Rúnarsdóttir
Rakel Sölvadóttir
Helga Árnadóttir, Signý, Tulipop
Árný Elíasdóttir, Inga Björg, Ingunn B. Vilhjálms(Attendus)
Margrét Pála Ólafsdóttir
Marín Magnúsdóttir
Agnes Sigurðardóttir
Sigríður Margrét Guðmundsdóttir
Guðbjörg Glóða Logadóttir
Jón G. Hauksson
Edda Jónsdóttir
Freydís Jónsdóttir
Guðrún Hálfdánsdóttir
Íris Gunnarsdóttir/Soffía Steingríms
Lára Vilberg

Þakkarviðurkenningin er veitt konu fyrir eftirtektarvert ævistarf  sem stjórnanda í atvinnulífinu. Viðurkenningarhafar fyrri ára eru:

Bryndís Brynjólfsdóttir
Anna Stefánsdóttir
Sigríður Ásdís Snævarr
Hildur Petersen
Hafdís Árnadóttir
Sigríður Vilhjálmsdóttir
Guðný Guðjónsdóttir
Guðrún Edda Eggertsdóttir
Guðrún Lárusdóttir
Erla Wigelund
Dóra Guðbjört Jónsdóttir
Bára Magnúsdóttir
Guðrún Birna Gísladóttir
Guðrún Agnarsdóttir
Guðrún Erlendsdóttir
Rakel Olsen
Guðrún Steingrímsdóttir
Vigdís Finnbogadóttir
Jórunn Brynjólfsdóttir
Unnur Arngrímsdóttir
Bára Sigurjónsdóttir