Konur skipa 8% stjórnarsæta meðal 100 stærstu fyrirtækja landsins. Konur eru í 32 af 408 stjórnarsætum. Árið 2005 var hlutfall þeirra 12% þannig að heldur virðist halla á hlut kvenna síðan þá. Þetta kemur fram í skýrslu sem Rannsóknasetur vinnuréttar og jafnréttismála við Háskólann á Bifröst hefur birt.

Þar kemur fram að konur eru 14% meðal æðstu stjórnarmanna fyrirtækjanna (46 konur af 328 forstjórum og framkvæmdastjórum). Árið 2005 var hlutfall þeirra um 10%.

Við val á fyrirtækjum var miðað við ársveltu fyrirtækja samkvæmt nýjustu upplýsingum frá Lánstrausti. Upplýsingaöflun fór fram á tímabilinu 23. apríl til 15.maí 2007. .

Meðal 100 stærstu fyrirtækjanna voru þrjú með konu sem stjórnarformann. Árið 2005 voru þær fimm. Engin kona er í stjórn 71% fyrirtækjanna. Konur voru í tæplega 8% stjórnarsæta af þeim fyrirtækjum á listanum sem skráð eru í Kauphöll. Þar af gegndi engin kona stjórnarformennsku.

12 fyrirtæki eru með konur í þriðjung stjórnarsæta eða meira og eru það; Árdegi hf, Diskurinn ehf, Edda ? útgáfa hf, Fasteignafélagið Stoðir hf, Fríhöfnin ehf, Hagar hf, Hraðfrystistöð Þórshafnar hf, Íslensk-ameríska verslunarfélagið ehf, Landsnet hf, Nýsir hf, Rúmfatalagerinn ehf og Þyrping hf.


Meðal annars upplýsinga sem koma fram í könnuninni eru þær að þriðjungur fyrirtækjanna eru með skriflega jafnréttisáætlun.


Rannsóknasetur vinnuréttar og jafnréttismála við Háskólann á Bifröst hefur birt upplýsingar um jafnrétti í 100 stærstu fyrirtækjunum hér á Íslandi fyrir árið 2007. Við val á fyrirtækjum var miðað við ársveltu fyrirtækja samkvæmt nýjustu upplýsingum frá Lánstrausti. Upplýsingaöflun fór fram á tímabilinu 23. apríl til 15.maí 2007. Helstu niðurstöður eru þær að konur skipa 8% stjórnarsæta og eru 14% meðal æðstu stjórnenda fyrirtækjanna. Vegna þess að farin var sú leið að miða við ársveltu er vakin athygli á því að hluti fyrirtækjanna í úrtakinu eru eignarhaldsfélög með mjög fáa starfsmenn. Rannsóknin er gerð í samvinnu við Rannsóknamiðstöð Háskólans á Bifröst.