Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fækkaði um tæp 9% í apríl miðað við sama tíma í fyrra, úr rúmlega 130 þúsund farþegum árið 2004 í tæpa 119 þúsund farþega nú. Fækkun farþega til og frá Íslandi nemur rúmum 7% milli ára og farþegum sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið fækkaði um rúm 16%. Helsta ástæða fækkunar farþega nú í apríl miðað við í apríl í fyrra er talin sú að páskarnir voru fyrr í ár heldur en í fyrra, þ.e. í mars í stað apríl árið 2004.

Alls hefur farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgað um rúmlega 9% það sem af er árinu miðað við sama tíma árið 2004, eða úr rúmlega 382 þúsund farþegum í rúma 418 þúsund farþega.