Í ágústmánuði síðastliðnum fóru 271.501 farþegi um Keflavíkurflugvöll og fækkaði þeim um 7,6% á milli ára.

Þetta kemur fram í tölum frá flugvellinum sem birtar voru í dag á vef Ferðamálastofu.

Fækkun farþega það sem af er þessu ári nemur 3,35%. Að stærri hluta eru það reyndar viðkomufarþegar.

Farþegum á leið til og frá landinu hefur fækkað um 11 þúsund á árinu eða 0,83%