Hlutabréfaeign FL Group í skráðum félögum nemur nú 73 milljörðum króna. Þar af er um 47 milljarðar í innlendum fjármálafyrirtækjum. 51,0 milljarða króna eru í innlendum hlutabréfum og 21,8 milljarða króna í erlendum hlutabréfum. Af þessum 72,8 milljörðum króna eru 29,6 milljarðar króna í framvirkum samningum.

Eign FL Group í íslenskum fjármálafyrirtækjum vekur mikla athygli. Félagið á 8,5% í Íslandsbanka og er markaðsvirði þess hlutar 18,5 milljarðar króna. Félagið á 5,8% hlut í Straumi-Burðarás sem er 9,5 milljarða króna að markaðsvirði. í KB banka á félagið 3,2% sem er 13,8 milljarða króna virði. Í Landsbankanum á FL Group 2% sem er 5,4 milljarða virði.