Fjárfestar tengdir Baugi og FL Group hafa gert samning um að kaupa hlut í Glitni fyrir um 110 milljarða króna, samkvæmt heimildum Ríkisútvarpsins, en FL Group er stærsti einstaki hluthafinn í bankanum með 33% hlut. FL Group er því komið upp að efstu mörkum áður en yfirtökuskylda myndast.
Í febrúar síðastliðnum greindi Viðskiptablaðið frá kaupum FL Group í Glitni og bar málið undir Viðar Má Matthíason, formann Yfirtökunefndar.
"Við fylgjumst með þessu og öllum breytingum á markaðnum sem koma nálægt yfirtökumörkum, hvort sem þau eru lögbundin eða bundin í samþykktum, þar með töldu þessu," sagði Viðar Már.
Í 6. grein samþykkta Glitnis segir: "Ef hluthafi á meira en 1/3 hlutafjár og ræður yfir samsvarandi atkvæðamagni, geta aðrir hluthafar, hver um sig, krafist innlausnar hjá hluthafanum. Þá kröfu verða þeir að gera innan átta vikna frá því að þeir vita af þessum rétti sínum. Nái aðilar ekki samkomulagi um verð vísast til 22. greinar og 24. greinar laga númer 2/1995 um hlutafélög."
FL Group á sem fyrr segir 33% í Glitni og samkvæmt hluthafalista frá Glitni á Baugur Group um 1%. Aðspurður um hvort FL Group og Baugur teljist tengdir aðilar, og hlutafjáreign þeirra fari samanlagt yfir yfirtökumörk, segir Viðar Már að ákvörðun Fjármálaeftirlitsins liggi fyrir um að Oddaflug og Baugur Group hafi ekki verið í samstarfi á sínum tíma þegar þeir juku hlut sinn í FL Group.
"Hvort FL Group og Baugur eru (tengdir aðilar) núna er bara sérstakt athugunarefni. Yfirtökunefndin hefur ekki haldið fund um þetta mál en við höfum auðvitað tekið eftir þessu og munum skoða þetta," sagði Viðar Már.
Ríkisútvarpið segir í frétt í dag að Kaupþing hafi milligöngu um 110 milljarða viðskipti fyrir hönd Hannesar Smárasonar og Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og aðila sem tengjast þeim. Fréttastofan fullyrðir að gengið verði frá viðskiptunum á þriðjudaginn, þegar Kauphöll Íslands opnar fyrir viðskipti á ný.
Einar Sveinsson, stjórnarformaður Glitnis, og hlutahafinn Karl Wernersson og tengdir aðilar eru taldir hafa samþykkt að selja í Glitni. Ríkisútvarpið segir Bjarna Ármannsson, bankastjóra Glitnis, ekki ætla að selja sinn hlut og að hann muni áfram starfa hjá Glitni.