FL Group hefur aukið hlut sinn í Glitni í 23% úr 19,94%, segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands.

FL Group keypti 437 milljónir hluta í Glitni á genginu 18,29 og er virði viðskiptanna því 7,99 milljarðar króna.

Í tilkynningu til Kauphallarinnar eru bent á að Hannes Smárason er forstjóri FL Group, en hann er jafnframt stjórnarmaður í Glitni. Skarphéðinn Berg Steinarsson er stjórnarmaður í Glitni og jafnframt stjórnarformaður FL Group.

Hluti umræddra viðskipta, eða 170.000.000 hlutir, eru í formi framvirks samnings með lokauppgjör þann 4. ágúst 2006, segir í tilkynningunni.