FL Group hefur samið um útgáfu skuldabréfaflokks að fjárhæð 15 milljarðar króna að því er kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Um er að ræða óverðtryggð skuldabréf til 12 mánaða með ársfjórðungslegum vaxtagreiðslum og einum gjalddaga höfuðstóls árið 2007. Útgáfudagur flokksins er 20. mars 2006. Sótt verður um skráningu flokksins í Kauphöll Íslands.

Verðbréfamiðlun Landsbanka Íslands er umsjónaraðili skuldabréfaútboðsins og þegar hefur verið lokið sölu á öllum flokknum til fjárfesta.