Hluthafafundur FL Group [ FL ] samþykkti að félagið kaupi hluti þeirra hluthafa sem þess óska í kjölfar afskráningar félagsins með hlutum í Glitni [ GLB ], að því er fram kemur í upplýsingum frá Kauphöll.

Kaupgengi hlutabréfa í FL verður 6,68 fyrir hvern hlut. En kaupgengið í Glitni verður 17,05 fyrir hvern hlut.

Þannig fær hver hluthafi sem tekur kauptilboðinu 0,39 hluti í Glitni fyrir hvern hlut í FL Group.

Aukin heldur samþykkti hluthafafundur að heimila félaginu að kaupa allt að 20% af eigin bréfum.

Hluthafar sem fara fyrir 83% hlut í FL Group hafa samþykkt að vera áfram í félaginu.