Stjórn FL Group hf. gerði að tillögu sinni fyrir aðalfund félagsins í gær að greiddur verði 104% arður af nafnvirði hlutafjár, sem samsvarar 6.034 milljónum króna. Þetta er um 35% af hagnaði félagsins eftir skatta 2005 og var tillagan samþykkt.

Réttur til arðs miðast við að nafn hluthafa sé skráð í hlutaskrá félagsins við lok aðalfundardags. Greiðsla arðs skal fara fram þann 7 apríl 2006.