Úrvalsvísitalan hækkar um 1,50% og er 5.685,50 stig, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni. Markaðurinn hefur ekki lokað fyrir viðskipti enn.

FL Group hækkar um 4,55%, Flaga Group hækkar um 4,45%, Grandi hækkar um 4,00%, Marel hækkar um 3,76% og Mosaic Fashions hækkar um 2,86%.

Þrjú fyrirtæki lækka við lok dags. Atorka Group lækkar um 0,86%, Dagsbrún lækkar um 0,46% og Atlantic Petroleum lækkar um 0,31%.

Gengisvísitala krónunnar lækkar um 0,72% og er 123,6 stig við lok dags.