FL Group keypti eigin bréf fyrir 585 milljónir króna á föstudaginn, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni.

Ástæða viðskiptanna er uppgjör á hluta kaupréttarsamninga sem nú hafa verið nýttir. Heildarnafnvirði nýttra kauprétta er 23.333.334 hlutir.

Um er að ræða 19.666.667 hluti, keypta á genginu 29,75.