FL Group hefur keypt fyrir um 1,36 milljarða í Glitni, samkvæmt tilkynningu til Kauphallarinnar. Um er að ræða 80.000.000 hluti á genginu 17,1.

Félagið hefur að undanförnu verið að bæta við sig í bankanum. Þann 4. maí keypti FL Group fyrir um 6,3 milljarða í Glitni og 19.apríl var keypt fyrir um 1,3 milljarða.

Fjárfestingarfélagið FL Group og fjárhagslega tengdir aðilar eiga 2.844.125.484 hluti í bankanum eftir viðskiptin. Miðað við gengið 17,1 nemur eignarhluturinn samtals 48,6 milljörðum.