FL Group kaupir í Glitni fyrir 5.640 milljónir króna, samkvæmt flöggun til Kauphallarinnar.

Um er að ræða 240.000.000 hluti á genginu 23,5. Fjárfestingarfélagið á 4.180.168.495 hluti í bankanum eftir viðskiptin. Viðskiptin voru verðmyndandi.

Glitnir birti í morgun uppgjör sitt fyrir þriðja ársfjórðung og hækkuðu bréfin um 2,17% í dag.

Samkvæmt hluthafalista ræður FL Group yfir 23,59% hlut í Glitni en þá er ekki tekið tilliti til nýafstaðinna kaupa.