FL Group hefur aukið hlut sinn í danska raftækjaframleiðandanum Bang & Olufsen í 10,1% úr 8,2%, segir í tilkynningu til dönsku kauphallarinnar.

FL Group á 1,25 milljón hluti í B&O eftir kaupin. Ekki hefur komið fram hvort að félagið hafi áhuga á að taka raftækjaframleiðandann yfir.