FL Group hefur aukið hlut sinn í Glitni banka og er komið í 30% samkvæmt flöggun í Kauphöllinni.

FL keypti í gær hlutabréf að nafnverði 100 milljónir á genginu 23 og jók því hlut sinn úr 29,3% í 30%. Milestone, eignarhaldsfélag Karls Wernerssonar og fjölskyldu, er annar stærsti hluthafinn í bankanum með nær 14,7%.

Samkvæmt hluthafalista frá 1. desember síðastliðnum var eignarhlutur FL Group í Glitni 25,28% sem þýðir að félagið hefur aukið eignarhlutinn, samkvæmt flögguninni um liðlega 4,7% síðustu daga.

Særsti hluthafinn í FL Group er eignarhaldsfélag Hannesar Smárasonar forstjóra. Annar stærsti hluthafinn er eignarhaldsfélag Baugs.