FL Group hefur aukið hlut sinn í Dagsbrún í 5,48% úr 3,96%, samkvæmt flöggun í Kauphöllinni.

Um er að ræða 90.000.000 hluti en kaupgengið er ekki gefið upp. Miðað við gengið í síðustu viðskiptum dagsins, 5,7 krónu krónur á hlut, er verðmæti hlutarins 513 milljónir króna.