FL Group hefur aukið hlut sinn í dansk bjórframleiðandanum Royal Unibrew. Eignarhlutur FL Group er nú kominn upp í 20,47%.

Allt frá því FL Group keypti fyrstu 10% í febrúar síðastliðnum hefur félagið hægt og rólega aukið hlut sinn segir í frétt á vef danska viðskiptatímaritsins Börsen.

Royal Unibrew lokaði í dag á genginu 613, og hafði hækkað nokkuð frá því í gær. Bréf félagsins hafa hækkað um 15% það sem af er ári og er hlutur FL Group nú metin á um 800 milljónir danskra króna eða um 13,2 milljarða króna.