FL Group á 5,8% hlut í Kaupþingi banka, að því er fram kemur í ársskýrslu félagsins til Kauphallar Íslands.

FL Group er ekki skráð fyrir hlutnum á veg Kauphallarinnar yfir stærstu hluthafa bankans.

Þá á FL Group 19,9% í Glitni banka, samkvæmt sömu skýrslu. Samanlagt markaðsvirði þessara eigna er tæplega 80 milljarðar króna.