FL Group staðfestir að félagið hefur átt viðræður við stjórn Inspired Gaming Group plc (INGG) vegna óskuldbindandi tilboðs sem henni hefur verið gert, um kaup á öllum útistandandi hlutum í INGG á verðinu 385pens á hlut. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Engin fullvissa er um að formlegt tilboð verði niðurstaða viðræðna. Frekari tilkynningar verða gefnar út þegar við á, segir í tilkynningunni.

Markaðsvirði félagsins er um 258 milljónir punda eða 33,7 milljarðar króna.

Gengi INGG hækkaði um 7,48% í dag en félagið er skráð í bresku kauphöllina (London Stock Exchange), og er gengið nú 366,25 pens, ef marka má upplýsingar frá verðbréfavefnum Hemscott.