Landsbankinn og FL Group hafa keypt meirihlutann í Daybreak Holdco Ltd. móðurfélagi Wyndeham Press Group Ltd. eða alls 64% af heildaratkvæðamagni. Kaupin eru gerð í tengslum við hlutafjáraukningu í prentsmiðjunni.

Í tilkynningu til Kauphallarinnar segir að í tengslum við sölu á hlutafé í Daybreak hafi verið gefið út nýtt hlutafé og tryggði Landsbankinn söluna á nýju hlutafé sem að FL Group og Landsbanki Íslands hf. skráðu sig fyrir.

Eftir viðskiptin verður Daybreak hlutdeildarfélag 365 hf. Eins og kom fram í tilkynningu þann 1. desember þá er áætluð skuldastaða félagsins eftir eignasölu og endurskipulagningu um 8.100 milljónir íslenskra.

365 (áður Dagsbrún) gjaldfærðu 1,5 milljarða í níu mánaða uppgjöri ársins vegna bresku prentsmiðjunnar