FL Group hefur selt eigin bréf fyrir um 81,6 milljónir króna á genginu 13,6, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni. Er það vegna uppgjörs á kaupréttasamningum við hluta stjórnenda Icelandair Group um bréf í fjárfestingarfélaginu.

Gengi FL Group er 24,9 krónur á hlut við lok dags og hækkuðu þau um 2,47%.